RRRÆÆÆÆÆÆSSSSSSSSS
Krispís....takk elmar>! Þú bjargaðir lífi
okkar! Án þín værum við aldrei fyndnar, og ekki jafn
varasamar í rúminu! Jább besti kynfræðslukennari í
heimi! Allavega urðu ekki til nein lausaleiksbörn fyrir
tvítugt í bekknum! SKÁL
Komin tími fyrir uppvakningu!
Ekki
annað hægt að en að endurvekja Glamúrinn í lífi okkar stelpur!
bwahahaha
Allavega margt búið að ske hja okkur öllum, erum reyndar
allar barnlausar og ógiftar, ennþá! Nema kannski Anna Hlíf, já
hennar baugfingur prýðir dýrindis gull
Til hammara með það
dúlla.
Saga, og Matta eru alltaf í skólanum, Ég og Anna alltaf í
vinnunni, og reyndar í skóla líka, og svona gengur þetta bara!
Lífið er frábært!
Eins
og venja er í febrúar kemur hið margumtalaða og víðfræga Rockshow
Frá hinni alræmdu 740 Paradís suður í ómenninguna og mun gleðja
einmana hjörtu á Broadway, í ár þann 23 feb. Og að því tilefni
ætlum við gamli (og bestasti) bekkurinn að hittast og djamma
hörkulega saman. Þetta verður alveg kostuleg skemmtun, því guð veit
að ef einhver bekkur getur djammað og gert allt kreisí þá GETUM VIÐ
ÞAÐ!
Jeminn ég get barasta ekki beðið! Fór einmitt að hugsa um
hversu stutt er í bekkjarmótið okkar, aðeins ár, eða eitt og hálft!
Mega mega!
Annars þá finnst mer að við ættum stelpur að taka eitt
ærlegt djamm fljótlega, saklaust stelpudjamm (sem endar nú
yfirleitt frekar ósakleysislega;/ hahaha).
Jamm
ákvað að blogga bara smá hérna, var farin að sakna glamúrspennunar!
Mæli með því stelpur að þið haldið þessu við með mer 
Og
já Ommi takk fyrir kommentið, gaman að sjá að víðfrægir og
veraldarvanir lífverðir geri sér ferðir um síðuna okkar
Stelpur,
hann er laugarvörður í Laugardagslauginni, ef þið viljið láta
bjarga ykkur að hætti Baywatch

Hei
vil deila smá sögu með ykkur,! Það vildi svo til að ég vaknaði einn
morguninn (sem ég geri nánast á hverjum morgni), mjög snemma eins
og ávallt, og þeir sem þekkja mig vel, eða allir þeir piltar sem
hafa verið það óheppnir að hafa þurft að vakna við hlið mér vita
hversu mjög úldin ég verð við það eitt að vakna, en þið sem hafið
verið heppinn í lífinu og ekki hugmynd um hvað ég er að tala um,
ýmindið ykkur þá andlit á skessu, sem fíll hefur ælt yfir og sólin
buin að skína á það og þurrka það fast við fésið, eða allt að því,
allavega ég vakna yfirleitt frekar úldin, og er ekki sú hressasta
þegar klukkan hringir, ótrúlegu frasarnir og blótsyrðin sem eg get
látið út úr mér við eitt píp áður en ég vakna, og svo opna ég augun
og þá verður allt í lagi, lifið frábært og allt það, nema að ég
verð ennþá mjög úldin, og það hverfur ekkert! er til staðar alveg í
2 tíma eða eikkað! ALLAVEGA, var doldið þreytt þenna tiltekna
morgun, fór að þjalfa frá 6-8 og þegar ég var á leiðinni í bankann
(hin vinnan) þá var ég að hlusta á útvarpið , og blótandi hversu
ógeðslega úldin ég væri og vonaði að engir sætir strákar myndu koma
í bankann þann morguninn og þá var verið að tala um
landsbyggðarkvenfólk, og að það væri besti kosturinn , besta
kvenfólkið og bestu kærusturnar. Og ég náttla alveg nógu ánægð með
það, þetta var í Zúper á fm, og þá fara þeir að tala um kvenfólk
frá Nesk, að það væri best, í alvöru ég er ekki að ljúga, (kærastan
hans svala er nattla frá Nesk) og hann játaði það auðvitað og svo
var hringt inn, og ég heyrði allavega 2 tala um það að það væri
best að eignast kærustur frá 740 P... og jarí jarí járí, værum
bestar í rúminu og blabla. Og inn sveif ég í vinnunna, með egóið í
botni, og allur úldleiki gleymdur! STELPUR ER ÞETTA EKKI SATT EÐA
HVAÐ? Það er allt satt sem heyrist í útvarpinu!
hahahahhahahahaewhahaah
VIldi bara deila þessu með ykkur!
funny
facts
jæja
kvefaða skrímslið er OUT
hastalavista mófó
-
Krullz
P.s.
smá
eðall:
ring
ring...........Pitt hérna megin!